Sendingarleiðirnar okkar
Fá sendingu samdægurs
Er stutt í fríið?
Ef þú hefur samband við okkur, pantar fyrir 15:00 og velur að fá
vörurnar sendar á N1 Ártúnshöfða með Dropp (600 kr), þá eru þær tilbúnar samdægurs.
Fá sendingu frítt
Viltu sleppa við sendingargjaldið?
Ef þú verslar fyrir 13.000 kr eða meira fellur sendingargjald niður bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni (0 kr)!
Aðrar sendingarleiðir
Viltu velja aðrar hagstæðar sendingarleiðir?
Við bjóðum upp á fjöldan allan af sendingarleiðum! Sóttu á allar N1 stöðvar (600 kr), í póstbox/pósthús (~1000 kr) o.fl. Athugið að þessar sendingarleiðir eiga ekki við þegar sendingartími er tekinn fram í titli á vöru.
Um okkur
Ódýr
Við gerum okkar besta við að halda verðinu eins lágu og við getum. Þetta getum við gert með því að kaupa í meira magni, nýta okkur viðskiptasambönd og halda leigutekjum í lágmarki. Þú getur alltaf búist við sanngjörnum verðum í ferðabúðinni!
Gæði
Við leggjum okkur fram við að selja vandaðar vörur. Fyrir einstaka vörur þá bjóðum við upp á "vandaða útgáfu" og "ódýrari útgáfu", en þetta er gert til að leyfa fleirum að finna eitthvað við sitt hæfi.
Einfaldleiki
Þú getur valið fjöldan allan af sendingarleiðum og fundið allt sem þig vantar í ferðalagið hjá okkur. Við gerum ferlið eins auðvelt og hægt er!
Við mælum með
Hér eru nokkrar vörur sem eru í miklu uppáhaldi hjá okkur.
Lonely Planet ferðabækurnar eru heimsfrægar ferðabækur, vel skrifaðar og innihalds miklar. Þær geta gert ferðalagið þitt enn betra. Við erum með gott úrval af þessum bókum. Veldu þá bók sem hentar þínu ferðalagi best!
Meira um hverja bók fyrir sig:
Þetta er frábært, vandað og öruggt leðurveski með kopar keðju fyrir ferðalögin. Það er með innbyggðri RFID kortaupplýsingavörn sem veldur því að þjófar geti ekki stolið kortaupplýsingum með skönnum og tækjum. Veskið er með keðju sem hægt er að festa við sig til að koma í veg fyrir það að vasaþjófar geti auðveldlega tekið veskið úr vasanum okkar.
Það getur verið mikið vesen að týna kortum, peningum og skilríkjum erlendis og það getur einfaldlega eyðilagt ferðalögin. Þar að leiðandi er best að gera allt sem í valdi okkar stendur til að passa upp á þessa hluti.
Þetta veski slær tvær flugur í einu höggi og verndar þig frá vasaþjófum ásamt RFID kortaupplýsingaþjófum.
Veskið er gert úr leðri með kopar keðju. Það er með tveimur hólfum fyrir klink, stað til að geyma kort s.s. ökuskírteini og greiðslukort.

Bættu skipulagið og auktu öryggi
Þegar við ferðumst erum við oftar en ekki á stöðum sem við þekkjum illa og við erum ekki alltaf vör við þær hættur sem geta leynst í kringum okkur. Það er því mikilvægt að vera vel skipulagður/skipulögð og vera með búnað sem aðstoðar okkur við að verða ekki fórnarlamb glæpamanna erlendis.
Við seljum m.a. hluti sem gerir vasaþjófum erfitt fyrir að stela af okkur, búnað sem hjálpar til við að halda ferðatöskunum okkar snyrtilegum og skipulögðum og ýmislegt sem getur nýst sér vel þegar við ferðumst.
Við einblínum á vandaðar vörur sem hafa fengið frábærar viðtökur frá viðskiptavinum og sem geta nýst þér og þínum í komandi ferðalögum.
Við höfum öðlast traust viðskiptavina okkar og við þökkum þér fyrir að heimsækja ferðabúðina.